Dagskrá laugardagsferða veturinn 2022 -2023

 

 

Ferðir LHM frá Hlemmi á laugardagsmorgnum í vetur standa til loka apríl. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni.  

Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna. Farið er annan hvern laugardag. Dagskrá ferðanna er kynnt hér að neðan. Mæting er venjulega milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Oftast er lagt af stað frá Hlemmi en upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM.
 
Dagskrá ferðanna:
  • 15. október - Útsýnisferð um hæðirnar í Reykjavík.
  • 29. október - Nýbyggðir þéttingarreitir í Reykjavík og Kópavogi.
  • 12. nóvember - Úlfarsárdalur, nýjasta hverfi Reykjavíkur.
  • 26. nóvember - Óvissuferð, Austurbærin.
  • 14. janúar - Óvissuferð, Miðborgin.
  • 28. janúar - Óvissuferð, Höfnin.
  • 11. febrúar - Óvissuferð Vesturborgin.
  • 25. febrúar - Götur kenndar við álfa.
    Búa álfar þar ennþá og er gott að hjóla um álfabyggð?
  • 11. mars - Hjólað um græn svæði.
    Hvað eru græn svæði og hvað þýðir það að græn svæði fari undir byggð?
  • 25. mars - Hjólað um fleiri græn svæði.
    Hvað eru græn svæði og hvað þýðir það að græn svæði fari undir byggð?
  • 08. apríl - Landnámsbók in nýja.
    Í ferðinni ætlum við að skoða nokkur ný landnám á höfuðborgarsvæðinu.
  • 29. apríl - Fleiri götur kenndar við álfa.
    Búa álfar þar ennþá og er gott að hjóla um álfabyggð?

Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.

Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Kort af lituðum lykileiðum.