Þrjú tonn af sandi ... og gott betur

Á vef Reykjavíkurborgar birtist eftirfarandi frétt fimmtudaginn, 9. janúar 2014:

Þrjú tonn af sandi ... og gott betur

„Við erum stöðugt á ferðinni og í þessu tíðafari er það viðvarandi verkefni að halda gönguleiðum greiðfærum. Klakinn er ekkert að hverfa við þetta hitastig,“ segir Sigurður Geirsson stjórnandi dráttavéladeildar Reykjavíkurborgar og hann gerir ráð fyrir að vera á ferðinni með allan sinn mannskap inn í helgina og áfram næstu viku.

Á hverjum degi dreifa starfsmenn 30 – 40 tonnum af sandi eða um 200 tonnum á viku. Eftir stígum og gangstéttum fara sérútbúnar dráttarvélar sem borgin keypti haustið 2012.  Í forgangi eru helstu göngu- og hjólastígar , svokallaðir stofnstígar milli borgarhluta og síðan helstu gönguleiðir að strætóbiðstöðvum og skólum sem eiga að vera greiðfærar fyrir kl. 8:00 virka daga. Notaður er þveginn sandur (0 – 8 mm) á gönguleiðir en saltblanda við strætóbiðstöðvar.

Viljum bregðast hratt við

„Starfsmenn Reykjavíkurborgar leggja sig fram um að sinna vetrarþjónustunni vel,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir stjórnandi reksturs og umhirðu borgarlandsins. Auk gönguleiða hefur þurft að sandbera klakann sem er á skóla- og leikskólalóðum.  Guðjóna segir að sýna verði starfsmönnum skilning við þessar síbreytilegu aðstæður, en mikilvægt sé að fá ábendingar.  „Við leggjum áherslu á að bregðast vel og hratt við þegar ábendingar berast,“ segir hún og bætir við að best sé að fá ábendingar inn á ábendingavef Reykjavíkurborgar.

Sandur og salt fyrir íbúa

„Borgarbúar hafa verið duglegir að sækja sér sand og salt á hverfastöðvarnar og verkbækistöðvar garðyrkjunnar,“ segir Guðjóna, sem leggur áherslu á þessa þjónustu.

Sand og salt geta íbúar sótt á hverfastöðvarnar við Njarðargötu, á Klambratúni við Flókagötu, í Jafnasel,  á Stórhöfða og á Kjalarnesi. Hverfastöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga frá kl. 7:30 – 17:00 og föstudaga kl. 7:30 – 15:25.  Einnig má sækja sand á verkbækistöðvar garðyrkjunnar við Árbæjarblett og í Laugardal (ekið frá Sunnuvegi).  Þær eru opnar mánudaga til miðvikudaga frá kl. 7:30 – 18:00 og fimmtudaga og föstudaga kl. 7:30 – 15:25.
 
Nánari upplýsingar:

Snjóhreinsun og hálkuvarnir - Um viðbragðsáætlun vetrarþjónustu og kort með þjónustuflokkum (forgangsáætlun).  

Ábendingavefur >>>  Borgarlandið fyrir þínar ábendingar

 

Sandkassinn á þessari vél tekur um 2 tonn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Göngu- og hjólaleiðir eru sandaðar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


English

The city of Reykjavik has been trying hard to keep the paths and pavements clear and non-slippery this winter. Still, thick slabs of ice has formed on most paths. Sand is distributed in an effort to eliminate slippery conditions.

The public can get sand and salt free of charge for their own use from the city neighborhood centers on Njarðargata, Klambratún by Flókagata,  Jafnasel,  Stórhöfða and Kjalarnes. The neighborhood centers are open monday to thursday 7:30 – 17:00 and fridays 7:30 – 15:25.