Fréttir og greinar um tæki, tól og annan útbúnað.

Flokkur: Útbúnaður

Fyrsta loftlausa, keðjulausa verksmiðjuhjólið.

rugged-img02“Rugged cycle” er ný tegund hjóla sem eru hönnuð fyrir jarðolíuiðnaðinn og er hugmynd Vince nokkurs Denais fyrrum svæðisstjóra í Texas. Verksmiðjustarfsmenn notuðu hjól til ferðast hratt á milli en oft var sprungið á dekkjum og hjólin ryðguð. Þau voru gagnslaus eða óörugg að hans mati. Hann í samstarfi við NASA verkfræðinginn föður sinn og bróður sinn með þekkingu á málmvinnslu hönnuðu hjólið og hófst framleiðsla árið 2007 og er það framleitt í tólf manna fjölskyldufyrirtæki í Corpus Christi.

Flokkur: Útbúnaður

LED ljósin vísa leiðina

806435_750_496_0_0_0_0Frá Árhúsum í Danmörk berast fréttir af því að nú eigi að setja leiðarljós á enn einn hjólastíginn enda hafi þetta reynst vel. Danska fyrirtækið Geveko ITS framleiðir ljósin sem eru örþunn en sterkbyggð enda eiga þau að þola umferð snjóplóga á veturna. Þau hlaða sig í sólarljósi og lýsa í myrkri. Það veitti ekki af því að hafa svona leiðarlýsingu á nokkrum illa lýstum stígum á Íslandi.

 

Flokkur: Útbúnaður

Loftpúða reiðhjólahjálmur

lofthjalmurNýjung í reiðhjólahjálmum var kynnt í síðustu viku á hönnunarsýningu í Svíþjóð. Um er að ræða loftpúða sem skýst úr hálskraga þegar skynjarabúnaður skynjar hættu á höfuðhöggi. Kraginn er mun flottari en reiðhjólahjálmar eru almennt og hægt að skipta um efni á honum til að passa við mismunandi fatnað. Enda var ætlunin að höfða til fólks sem ekki vill nota hefðbundna reiðhjólahjálma. 

Flokkur: Útbúnaður

Vantar hjálparmótor á hjólið?

bionx_motor_battery_charger_console_21Margir eru spenntir fyrir reiðhjólum með hjálparmótor en það er einnig möguleiki að setja slíkt á gamla hjólið með kitti eins og þessu. Batteríinu er kippt af hjólinu, tekið inn og sett í hleðslu svo það þarf enga sérstaka aðstöðu með rafmagnstengli til að nýta sér þennan búnað.

Flokkur: Útbúnaður

Gerum hjólin klár fyrir veturinn

vinter_477562cNú nálgast veturinn og kominn tími til að gera hjólið klárt. Við mælum eindregið með nagladekkjum undir hjólin á höfuðborgarsvæðinu þar sem oft er hálka á stígunum. Og kannski er tími á að endurnýja ljósabúnaðinn á hjólinu með nýju öflugu ljósi? Hér eru nokkur ráð í Politiken um hvernig dönum er ráðlagt að gera hjólin klár fyrir veturinn.

Flokkur: Útbúnaður

Google myndar hjólaleiðir

Google Street View hjóliðMargir þekkja Google Street View, þar sem hægt er að skoða götur í borgum í þrívídd rétt eins og maður væri staddur þar. Nú er verið að útvíkka verkefnið í hinni hjólavænu Kaupmannahöfn með því að mynda hjólaleiðir með sérsmíðuðu Google Street View hjóli. Nú þegar er búið að kortleggja og mynda 300 kílómetra af hjólabrautum, stígum í gegnum garða og göngugötur. Það er stefnt að því að hjóla ekki færri en 3000 km. á þessu 150 kg. hjóli svo það verður spennandi að geta ferðast eftir fleiri leiðum er akbrautum í þessum Street View heimi.