Einn mikilvægasti viðburður samgönguvikunnar sem nú stendur yfir er kannski stofnun samtakanna um bíllausan lífstíl sem voru stofnuð 17. september í Ráðhúsi Reykjavíkur og mættu yfir hundrað manns á stofnfundinn. Við sama tækifæri veittu þau þremur aðilum viðurkenningar fyrir að setja sér samgöngustefnu og bjóða starfsfólki sínu hvata til að nota aðra samgöngukosti en einkabílinn.
Sigrún Helga Lund formaður flutti opnunakynningu.
Pawel Bartoszek
Anna Karlsdóttir gjaldkeri og fulltrúi strætóhópsins flutti erindi um hvernig má gera strætó sexy.
Fulltrúi skipulagshóps
Fulltrúi verðlaunanefndar
Fulltrúi frá Mannvit tekur við viðurkenningu fyrir samgöngustefnu sína sem um 20% starfsmanna hafa nýtt sér.
Fulltrúi frá Reykjavíkur borg tekur við viðurkenningunni en þeirra samningur hvetur til hjólreiða milli staða í vinnutíma.
Skólameistari FÁ hafði náð bestum árangri með sínum samning sem 30% starfsmanna höfðu nýtt sér og að auki hafa nemendur skólans ekki lengur frían aðgang að bílastæðum skólans.
Skoðið vef samtakanna um bíllausan lífstíl og takið þátt í umræðunni þar. Félagsgjald er ekkert.