Fræg mynd verður tekin á Melhaga á laugardaginn. Komið með reiðhjólin !

Á laugardaginn 19. júní frá kl. 13 er tækifæri til að taka þátt í skemmtilegan gjörning á Melhaga í vesturbæ Reykjavíkur og endurgerð á frægri mynd. Myndin  sýnir hversu mikið pláss við notum í umferðinni á reiðhjóli, í strætó eða á bíl.   Hjólreiðamenn geta sennilega mætt aðeins seinna. Skráið ykkur til þátttöku, og fylgist með á   myndumborg.tumblr.com eða á Facebook (sjá neðar). 

{jathumbnail off}

Frá http://myndumborg.tumblr.com  :
Til er fræg ljósmyndasería frá þýsku borginni Münster sem sýnir hversu mikið pláss sextíu manns taka í borgarlandinu ef þeir ferðast á einkabílum, reiðhjólum og í strætó. Münster er um 200 þúsund manna borg í Vesturhluta Þýskalands, og er hún gjarnan kölluð hjólahöfuðborg Þýskalands.

Ljósmyndaserían er gjarnan notuð í umræðum um samgöngu- og skipulagsmál í borgum, því hún sýnir glöggt hversu mikið svæði bílarnir taka á götunum, þar með einnig hve mikið gæti áunnist ef stærri hluti fólks ferðaðist um með öðrum hætti. Slíkt myndi ekki aðeins stuðla að minni hljóð- og loftmengun, og gera göturnar öruggari, heldur einnig gera það að verkum að þeir sem sannarlega vilja og þurfa nota bíl, kæmust greiðar á milli staða.

Laugardaginn 19. júní ætla áhugamenn um borgarlíf ásamt Samtökum um bíllausan lífsstíl að endurtaka tilraunina frá Münster og standa fyrir hópmyndatöku á Melhaga í vesturbæ Reykjavíkur. Myndatakan hefst klukkan 13:00 og verða teknar myndir af götunni með 60 bílum, 60 reiðhjólum og 60 manns í strætó og 60 gangandi vegfarendum.

Við þurfum sjálfboðaliða og allir eru velkomnir. Það myndi auðvelda okkur mjög vinnuna ef fólk myndi skrá sig, annaðhvort á Facebook-síðu viðburðarins og/eða með því að senda tölvupóst á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.. Gott er að tiltaka nafn, símanúmer og hvort menn geti komið á bíl eða hjóli.

Þetta er einstakur viðburður sem EKKI verður endurtekinn en öruggt má telja að ljósmyndin og myndbandið sem verður til, eigi eftir að vera notað lengi í umræðunni um borgar- og umhverfismál á Íslandi. Það er því um að gera að taka laugardaginn 19. júní frá!

Á bak við gjörningin og myndatakan standa Samtök um bíllausan lífsstíl. Kranabíll frá slökkviliðinu mun aðstoða ljósmyndarann (sem er fagmaður) að komast upp í rétta hæð.

Nánar :

http://www.facebook.com/event.php?eid=129599590394596
http://myndumborg.tumblr.com/

Myndumborg aðeins stærri  mynd

{jathumbnail off}