Hjólreiðavangur í Skálafelli - opnunarhátíð

bikepark-facebookUm helgina opnaði í Skálafelli fyrsti hjólreiðavangur á Íslandi. Um er að ræða 3 km langa fjallahjólabraut, Dirt-Jump braut og BMX stökkpallur. Diljá Ámundadóttir frá ÍTR hélt opnunarræðu. Það má skoða myndir á Facebook síðu hjólreiðavangsins og einnig er frétt og myndir á vef Fjallahjólaklúbbsins.

 

Diljá Ámundadóttir


Stöð 2 var með góða umfjöllun um þetta sem má sjá hér.

Elvar Örn Reynisson tók þetta myndband frá deginum sem sýnir vel hluta af því sem þarna er í boði.

 


Frétt á ÍTR.is: http://reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3695/2284_read-22427/

Hjólreiðavangur í Skálafelli

Þann 8. ágúst n.k. verður opnaður í Skálafelli fyrsti hjólreiðavangur á Íslandi. Um er að ræða 3 km langa fjallahjólabraut, Dirt-Jump braut og BMX stökkpallur.

Lyftur í Skálafelli verða opnar til að ferja hjólreiðamenn upp á topp en öllum er frjálst að nýta sér lyfturnar til að komast upp á topp til að ganga eða njóta útsýnis. Greiða þarf í lyfturnar.

Þá stendur einnig til að lagfæra slóða sem liggja frá svæðinu til að auðvelda hjólreiðamönnum að hjóla niður í Kollafjörð, yfir í Heiðmörk, í Kjós og á Þingvelli.

Svæðið verður opið um helgar fram á haust á meðan veður leyfir.

Nánari upplýsingar á www.tinyurl.com/skalafell