|
Skrifað af: Árni Davíðsson
|
|
15.11.10 |
|
Nýverið féll dómur í Lundi í Svíþjóð yfir manni að nafni Andreas Grass (1. mynd) sem var dæmdur fyrir að hjóla á götu þar sem hjólastígur (cykelbana) lá samsíða götunni. Hjólastígurinn í þessu tilviki var reyndar göngustígur ætlaður bæði gangandi og hjólandi. Í sama dómi var bílstjóri sem lenti í árekstri við Andreas sýknaður af því að hafa ekki haldið nægilegu hliðarbili og ekið á hann.
|
|
Nánar...
|
|
|
Skrifað af: Árni Davíðsson
|
|
12.11.10 |
Í frétt á Svensk Cykling er sagt frá því að æ fleiri hjóla í Svíþjóð en þrátt fyrir það hefur alvarlegum slysum og banaslysum fækkað. Alvarlega slasaðir hjólreiðamenn voru 61 % færri árið 2009 heldur en árið 1990. Aldrei hafa færri hjólreiðamenn slasast en árið 2009.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Páll Guðjónsson
|
|
26.08.10 |
|
Fréttablaðið gerði úttekt á gangbrautamálum Reykjavíkur og fann þar "frumskóg gönguleiða". Í samantektinni kemur fram að af því að bílstjórar fara ekki alltaf eftir umferðarreglum og stöðva við gangbrautir var ákveðið að fjarlægja gangbrautirnar og láta frumskógarlögmálin gilda.
Bílunum var gefinn forgangur í stað þess að ráðast að rótum vandans. Það eru jú bílar sem valda alvarlegustu slysunum í umferðinni og þar er vandamálið. Það dynur á okkur stöðugur áróður um að það sé hættulegt að hjóla og ganga og reynt að varpa ábyrgðinni á aðra en bílstjóra, t.d. með því að fjarlægja gangbrautir og láta gangandi fara yfir götur á eigin ábyrgð í stað þess að styrkja þær í sessi með löggæslu. Það er verið að "hættuvæða" öruggustu fararmátana með ýmsum hætti. Reiðhjólið er með öruggustu farartækjum sem völ er á og ef það á að teljast hættulegt að ganga um Reykjavíkurborg þarf að uppræta þær hættur.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Ásbjörn Ólafsson
|
|
17.05.10 |
|
1. Stofnun hjólaráðs Stofnaðu hjólaráð til að móta þá stefnu og þær hugmyndir sem fyrirtækið/stofnunin gæti unnið eftir og væru líklegar til árangurs.
Markmið ráðsins væri einnig að koma hugmyndunum í framkvæmd og það með vilja stjórnar. Myndun samgöngustefnu gæti verið hluti af aðgerðunum.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Stjórn LHM
|
|
06.05.10 |
|
Stefnumál Landssamtaka hjólreiðamanna Uppfærð og samþykkt á ársþingi 25 febrúar 2010.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Páll Guðjónsson
|
|
05.05.10 |
|
Út er kominn bæklingurinn Hjólreiðar – frábær ferðamáti sem ÍFHK útbjó í samvinnu við Landssamtök hjólreiðamanna í þeim tilgangi að hvetja fólk til að nota reiðhjólið sem samgöngutæki og til að fræða almenning um hvernig öruggast er að beita hjólinu í umferðinni.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Páll Guðjónsson
|
|
15.02.10 |
|
Í frétt á visir.is kom fram að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sagði að ekki eigi að ala á ótta í forvarnarstarfi. Þar hitti hún naglann á höfuðið. Persónulega hefur mér ofboðið hvernig alið er á ótta í forvarnarstarfi sumra aðila gagnvart hjólreiðafólki. Farið er fram með órökstutt mál og tilfinningarök, öllum brögðum beitt til að koma reiðhjólahjálmum á alla, óháð skaðlegum hiðarverkunum eins og því að fólk er hrætt frá því að nota þetta frábæra örugga farartæki. Eigum við ekki bara að hafa frjálst val og nota lögregluna í annað en að eltast við fólk sem vill finna vindinn leika um hárið?
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Páll Guðjónsson
|
|
19.11.09 |
|
Nýlega var okkur bent á íslenska rannsókn þar sem vernd hjólahjálma gegn áverkum á höfði var metin. Hún var birt í Læknablaðinu 1996 þremur árum áður en núgildandi regla var sett 1999. Þetta er mikilvægt innlegg í umræðuna núna því það er möguleiki að hjálmaskylda verði látin fylgja með í nýjum umferðarlögum sem hafa verið í vinnslu síðustu 1-2 ár. Í dag lítum við á regluna sem barn síns tíma sett að gefnum forsendum sem standast ekki skoðun og ekki hefur verið sýnt fram á gagnsemi reglunnar eins og við fjöllum ítarlega um t.d. í athugasemdum LHM við drögin að nýju lögunum og aftur við seinni drög. Greinilega hefur ekki verið tekið tillit til þess að niðurstaða þessarar rannsóknar sem greinir ekkert marktækt gagn af þeim. Þessi niðurstaða er samhljóma mörgum öðrum erlendum könnunum.
|
|
Nánar...
|
|
Skrifað af: Páll Guðjónsson
|
|
15.11.09 |
Eftirfarandi er úrdráttur og samantekt úr athugasemdum Landssamtaka hjólreiðamanna, LHM, við drög að nýjum umferðarlögum. Andstöðu við skyldunotkun hjálma má ekki túlka sem andstöðu við notkun hjálma. LHM er alls ekki á móti notkun hlífðarhjálma, flest notum við þá, a.m.k. við vissar aðstæður. Við erum heldur ekki á móti fræðslu um hjálma. Við viljum að fólki sé frjálst að hjóla með hvern þann hlífðarbúnað sem það kýs.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
Síða 3 af 7 |