Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, tók að sér að afhenda Sigurpáli Ingibergssyni, gæðastjóra Vínbúðarinnar, Hjólaskálina fyrir hönd Landssamtaka hjólreiðamanna og Hjólafærni á Íslandi. Fyrir ofan má sjá glaðan hóp með Hjólaskálina.
Andri Snær Magnason - Samgönguframtíð Íslendinga
Sýnir myndin íslenska ósigurbogann? Athyglisverðar hugleiðingar um samgönguframtíð Íslendinga og hvort gatnakerfi nútímans sé ekki bara snjóbræðslukerfi hannað til að bræða jökla og af hverju. Viljum við kannski búa á sjávarlóð uppi í Breiðholti?
Sigurður Ólafsson - Heilabrot um hjólastubba í Reykjavík
Sigurður Ólafsson er hjólreiðamaður sem bjó í Kaupmannahöfn í sjö ár og fjallar hér um heilabrot sín yfir hönnun hjólastíga í Reykjavík, hver lógikin sé og fleiru.
Þorvaldur Daníelsson - Hjólakraftur
Þorvaldur Daníelsson kynnir starfsemina í verkefninu Hjólakraftur
Finnur Sveinsson - Hjólabætum Ísland
Finnur Sveinsson fjallar um verkefnið Hjólabætum Ísland sem nokkur fyrirtæki komu að s.s. Hjólafærni, Landsvirkjun, Vörður, Vínbúðin, TRI, Rio Tinto Alcan, Reykjavíkur-borg og Landsbankinn ásamt fleirum s.s FÍB, ökukennarar, lögreglan o.s.frv.
Í vinnustofu voru 30 hugmyndir ræddar og ákveðið að setja fjórar í framkvæmd sem allar byggðu á jákvæðum skilaboðum:
Óskar Ómarsson - Keppnishjólreiðar
Óskar Ómarsson keppnishjólreiðamaður fer yfir starfsumhverfi, starfsemi og aðstæður keppnishjólreiðafélaganna.
Árni og Hörður - Öryggisúttekt hjólreiðastíga
Haustið 2014 voru gerðar öryggisskoðanir á nokkrum völdum hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu. Þær voru hluti af verkefni sem var styrkt af Rannsóknarsjóði vegagerðarinnar til að gera skýrslu um öryggiskoðun hjólastíga. Samtals voru skoðaðir 28,5 km af hjólastígum í fjórtán úttektum.
Dorthe Pedersen - Hjólað óháð aldri
Það hafa allir gott af útiveru og mannlegum samskiptum en þegar maður þarf að flytja á öldrunarheimili er hætt við einangrun og tilbreytingaleysi því þótt hugað sé að helstu læknisfræðilegu þörfum á slíkum stofnunum þá minnkar tilvera vistmanna oft verulega.
Í þessu einstaka verkefni hefur verið þróuð leið til að útvíkka sjóndeildarhringinn og tengja bæði kynslóðir og fólk innan hverfisins með því að virkja sjálfboðaliða til að fara reglulega með vistmenn í hjólatúra. Dorthe Pedersen lýsir í þessu yndislega erindi hvernig þetta verkefni spratt upp af sjálfu sér.
Hjördís Ýr Johnsen kynnir á framkvæmdir og áherslur í Kópavogi
Hjördís Ýr Johnsen, formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Kópavogs kynnir á framkvæmdir og áherslur í Kópavogi.