Stjornarfundur LHM 16. maí 2017

 

Mætt:

Ásbjörn Ólafsson, formaður

Árni Davíðsson, formaður umsagnarnefndar

Haukur Eggertsson, gjaldkeri

Páll Guðjónsson, ritstjóri

Sigurður Grétarsson

Sesselja Traustadóttir, viðburðastjóri

 

Fjarverandi:

Anna Kristín Ásbjörnsdóttir

Bryndís Friðriksdóttir, varastjórn

Katrín Halldórsdóttir, varastjórn

Morten Lange

Óðinn Snær Ragnarsson, umsagnarnefnd



 

Dagskrá:

 

Kynning 19 – 20
 

  • Hulda Steingrímsdóttir ætlar að segja okkur aðeins frá því góða hjólreiðastarfi sem Landspítalinn er að sinna.

    • Ýmsar umhverfisviðurkenningar

    • Hjólavottun á 11 vinnustöðvum

    • Tvö ný aðgangsstýrð hjólaskýli. (Fyrir 40 hjól - 20 MKr.)

    • Verið að vinna í að bæta búningsaðstöðu

    • Heilsuvænar samgöngur

    • Eftir átak náði hlutfall þeirra sem voru með samgöngustyrki 28% en ekki allir hafa endurnýjað.

    • Öryggismyndavélar virðast hjálpa lítið þegar um vana hjólaþjófa er að ræða og viðast ekki einu sinni hafa fælingarmátt.

    • Samgöngukönnun sýnir mjög jákvæða þróun.
      “Oftast á hjóli” 2016 18.63%, 2014 11.15%, eða 8.2 % í könun Vegagerðarinnar.
      Samtals um 40% ferðast með vistvænum hætti ef gangandi, og strætó taldir með.

 

  • Komst ekki - Hrönn Guðmundsdóttir ætlar líka að reyna að mæta og segja okkur aðeins frá því nýjasta sem er að gerast í „Hjólað í vinnuna“.

Stjórnarfundur 20 – 22:00

  • Erlent samstarf

    • Árni ætlar að fara á EuroVelo. Kristinn J. Eysteinsson frá Reykjavíkurborg og Guðbjörg Lilja líka. Gísli Jóns ætlar líka að fara sem blaðamaður Hjólhestsins.

    • Einhverjar þreifingar eru um að fá EuroVelo til Íslands 2021.

  • Umsagnir

    • Þurfum að vera vakandi yfir skipulagsmálum til að gera umsagnir um.
      Borgin mun styrkja okkur um 80 þ. Kr. fyrir hverja umsögn sem þeir biðja okkur um. Líklega verður það um stígana sem fyrirhugaðir eru 2017.

  • Hjólum til framtíðar

    • Vinna í gangi.

  • Fundir

    • Fundur framundan í Fagráðinu.

    • Boðið á útskriftarhátíð vegna verkefnisins “finndu leið”. Sjá póst fyrr í vikunni.

    • Fundað var með Heilbrigðismálaráðuneytinu. Sessý mætti fyrir hönd Hjólafærni á Íslandi og Landssamtök hjólreiðamanna.

    •  
  • Útgáfumál

    • Hjólafærni á Íslandi er að leggja lokahönd á Cycling Iceland hjólakortið, bæði á ensku og íslensku.

  • Fjármál

    • Reykjavíkurborg: 720 þúsund í styrk + 80 fyrir hverja umsókn.

    • Talning hjóla við skóla. Samkvæmt styrkumsókn þarf að telja hjólin í maí.
      Árni er með lista yfir skóla og við skiptum liði.
      Reyna að fá póst sendann á skóla yfirvöld til að láta vita af því hvað við erum að gera þarna.
      Árni og Sessý

    • Hjólafærni fékk styrk til að vinna áfram með Hjólavottanir.

    • Samtals voru lagðar inn umsóknir fyrir um 12 milljónir en Borgin valdi úr. Sjá nánar í svarbréfi frá Reykjavíkurborg.

  • Önnur mál

    • Hjólað óháð aldri var að fá þrjú hjól til viðbótar og er þjálfun og kynning fyrirhuguð samhliða því.

    • Eigum við að breyta birtingum á fundagerðum stjórnarinnar og hafa þær opnar öllum. Samþykkt að hafa þær allar opnar á heimasíðunni. Ef viðkvæm mál koma upp má undanskilja þau þegar við á.

    • Sesselja leggur til að fundargerð fyrri fundar verði lesin í upphafi næsta fundar og samþykkt eða leiðrétt. Hefð er þó fyrir því að senda hana á póstlista stjórnarinnar við fyrsta tækifæri og fá athugasemdir strax. Þær hafa síðan talist samþykktar ef ekki koma athugasemdir.