Aðgreind hjólreiðabraut milli Hveragerðis og Reykjavíkur

Reykjavík, 24. nóvember 2006

Efni: Aðgreind hjólreiðabraut milli Hveragerðis og Reykjavíkur

Þessa dagana stendur yfir endurskoðun á vegalögum, umferðarlögum og samgönguáætlun. Af því tilefni vilja Landssamtök hjólreiðamanna minna stjórn Hveragerðisbæjar á, að nú er svo gott sem ófært fyrir hjólreiðamenn að hjóla yfir Hellisheiði vegna mikillar og hættulegrar bílaumferðar. Í flestum nágrannalöndum okkar mundi fyrir löngu vera búið að leggja aðgreinda hjólreiðabraut meðfram jafn umferðarþungri akbraut sem yfir Hellisheiði liggur. 
Landssamtök hjólreiðamanna hafa fullan hug á því að mæla með aðgreindri hjólreiðabraut milli Hveragerðis og höfuðborgarsvæðisins, svo að hjólreiðafólk, sem og óvélknúin farartæki önnur, hafi möguleika á því að komast hættulaust milli þessara staða. 

Í vegalögum og samgönguáætlun, sem nú eru í endurskoðun er minnst á að heimilt verði að veita fé sem fari til vegamála til lagningar “hjóla- og göngustíga”. Sú skilgreining er afar óljós, því að hér er væntanlega aðeins verið að tala um “gangstéttir” í skilningi núgildandi laga en ekki aðgreindar hjólreiðabrautir. Ef hagsmunir allra samgöngukosta eru hafðir að leiðarljósi og lögð verður aðgreind hjólreiðabraut yfir Hellisheiði mun það knýja á um ýtarlega endurskoðun vegalaga, umferðalaga sem og samgönguáætlunar með tilliti til umferðar hjólreiðamanna.

Fram til þessa hefur vantað alla stefnu hjá sveitafélögum í lagningu hjólreiðabrauta sem þó er mikilvægur þáttur í Staðardagskrá 21 og einn besti kosturinn ef efla á sjálfbærar samgöngur. Að hluta til stafar þetta stefnuleysi ekki síst af því, að hjólreiðabrautir eru ekki nefndar á nafn í vegalögum, samgönguáætlun eða umferðarlögum.

Landssamtök hjólreiðamanna hvetja því Hveragerðisbæ til að knýja á um að samgönguráðuneytið móti verklagsreglur um gerð sérstakra hjólreiðabrauta í samráði við sveitafélög og hagsmunafélög. Það er ákaflega mikilvægt að af þessu geti orðið nú þegar, svo að sveitafélög geti sjálf og sín á milli farið að móta samræmda sjálfbæra samgöngustefnu í anda Staðardagskrár 21 og yfir Hellisheiði verði lögð sérstök hjólreiðabraut.

Nú liggur fyrir Alþingi þingsályktunartillaga þess efnis, að menn fari að ræða málefni hjólreiðamanna: 
http://www.althingi.is/altext/133/s/0082.html 
Landssamtök hjólreiðamanna hvetja til þess, að þessi þingsályktunartillaga fái brautargengi nú þegar, svo að efni hennar og aðgerðir rati bæði í Vegalög og næstu samgönguáætlun í samráði við hagsmunaaðila.


 

-- Greinargerð og fylgiskjöl --




Hvað eru hjólreiðabrautir?

Hér á landi hafa gangstéttir ekki verið hannaðar með hjólreiðar í huga. Því hafa þær ekki verið góður kostur í samgöngum. Hröð hjólandi umferð á ekki samleið með gangandi vegfarendum, fremur en hestar með bílaumferð. Að frumkvæði Reykjavíkurborgar hafa aðgreindar hjólreiðabrautir aðeins verið lagðar mjög stuttar vegalengdir og því engin reynsla komin á þær.

Þriðjungur ferða í Reykjavík er styttri en einn kílómetri, og tveir þriðju styttri en þrír kílómetrar. Það er því stór hópur fólks, sem auðveldlega gæti ferðast með öðrum hætti en með bílum. 
Hjólreiðabraut er smækkuð mynd akvegar fyrir bíla og því ekki gangstétt. Ef rétt er að málum staðið hafa hjólreiðabrautir sama vægi í samgöngum og akbrautir. 

Kostnaður við gerð hjólreiðabrauta er óverulegur, ef þær eru lagðar samtímis annarri vegaframkvæmd. Arðsemi hjólreiðabrauta er margfaldur, sé aðeins litið til heilbrigðisþátta. Að sama skapi lækka hjólreiðabrautir rekstrarkostnað akvegakerfisins, þar sem reikna má með fækkun ökuferða sem nemur fjölgun hjólreiðamanna. Því fleiri sem kjósa að hjóla, þeim mun betri verður álagsdreifing í samgöngukerfinu í heild og skilvirkni þess um leið mun betri.

Rekstrarkostnaður hjólreiðabrauta er óverulegur samanborið við rekstur akbrauta, þar sem afl og þyngd reiðhjóla er einungis örlítið brot af afli og þyngd vélknúinna ökutækja. Hjólreiðabrautir taka ekki aðeins við umferð reiðhjóla heldur lika rafmagnsreiðhjóla sem eru í hraðri framþróun um þessar mundir. Þær opna möguleika fyrir marga sem fara vilja ferða sinna með vistvænum hætti og án þess að vera í hættu af bílaumferð eða reyna mikið á sig. Þannig taka hjólreiðabrautir við umferð farartækja sem ekki er talið óhætt að séu á hættulegum akbrautum.

Innan íbúðahverfa með 30 km hámarkshraða geta hjólreiðabrautir og gangstéttir haft forgang fram yfir akvegi. Þannig mætti auka öryggi óvarinna vegfarenda innan þeirra svæða með því að þrengja götumyndina með hjólreiðabrautum fremur en hraðahindrunum og umferðareyjum. Hjólreiðabrautir ætti að leggja meðfram öllum vegum þar sem umferðin er umfram ákveðinn fjölda ökutækja eða þar sem hætta er talin stafa af hraðri umferð. Eðlilegur meðalhraði á hjólreiðabrautum er u.þ.b.30 km/klst. Slysahætta er því talsvert minni þar en á akbrautum. Forðast ber að leggja hjólreiðabrautir í hlykkjum eða um mishæðótt landsvæði. Samræmdar umferðarreglur gilda um akandi og hjólandi vegfarendur. Umferðarljós, skilti og vegmerkingar eru af sama toga svo að vegfarendur þurfa ekki að fara eftir mismunandi reglum hvort sem þeir eru akandi eða hjólandi. Þá verða ökumenn að horfast í augu við aukinn rétt annarra vegfarenda s.s. aðalbrautarrétt hjólreiðabrautar o.s.frv. Hjólreiðabrautir kalla því á endurbætta hönnun akbrauta ekki síst við gatnamót. 

Vegagerðir norðurlandaþjóðanna (sem og margra annarra þjóða) hafa þegar gefið út handbækur um stefnu sína og til leiðbeiningar um gerð hjólreiðabrauta. Hér skulu nefndar handbækur frá tveimur löndum:
Danmörk: Idékatalog for cykeltrafik. (Viðurkennd sú besta) Einnig fáanleg á ensku.Collection of Cycle Concepts.
Noregur: Nasjonal Sykkelstrategi, og í enskri útgáfu: National Cycling Strategy

 

Arðsemi hjólreiðabrauta er ótvíræð.

Tæplega þarf að minnast á allan þann heilsufarslega ávinning sem í hjólreiðum felst. Jafnframt má gera ráð fyrir því, að limlestingum og dauðsföllum í umferðinni fækki þar sem færri taka þá áhættu að aka bíl. Því fleiri sem kjósa að nota reiðhjól spara samfélaginu gríðarlegar upphæðir. Arðsemi hjólreiðabrauta er því margfaldur á við akvegi þótt aðeins sé litið til heilbrigðisþátta. 

Hér á landi hefur ekki verið farið út í arðsemisútreikninga á hjólreiðum en það hefur verið gert víða erlendis. Hér eru nefnd tvö dæmi:
Norðurlandaráð hefur gefið út skýrslu um úrval rannsókna sem sýna fjárhagslegan ávinning af hjólreiðum. Einhverra hluta vegna tóku Íslendingar ekki þátt í þessari úttekt: CBA of Cycling
Frá Noregi kemur Gang- og sykkelvegnett i norske byer (og stutt samantekt á norsku og ensku).
 

Skuldbinding Íslands um aðgerðir gegn losun gróðurhúsalofttegunda

Hjólreiðar til samgangna eru sjálfbærar. Frá þeim stafar ekki hávaði, svifryksmengun, losun koldíoxiðs eða annarra eiturefna. Landnýting hjólreiðabrauta gerist vart betri. Förgun reiðhjóla og spilliefna vegna þeirra er óveruleg. Aukin hlutdeild hjólreiða í samgöngum er því langbesti kosturinn til að fullnægja skuldbindingarloforðum s.s. mælt er með í Staðardagskrá 21 sem og öðrum alþjóðaskuldbindingum sem varða stefnu í loftslagsmálum.

Nú þegar stefnir í neyðarástand í loftslagsmálum heimsins. Ísland getur ekki skorast undan því að bregðast við með afgerandi hætti. Þriðjungur gróðurhúsalofttegunda á Íslandi stafar af samgöngum (pdf 3.0Mb). Það ætti því að vera skylda samgönguráðuneytisins og sveitafélaga að bregðast við nú þegar og breyta stefnu sinni í samgöngumálum. Ísland stendur öðrum þjóðum langt að baki við að hvetja almenning til notkunar sjálfbærra farartækja. Engin lausn í samgöngumálum er jafn áhrifarík og að byggja upp hjólreiðabrautakerfi sem er samkeppnishæft við akbrautir, ekki síst í þéttbýli. Samgönguráðuneytið verður að móta verklagsreglur eins og nágrannalöndin hafa gert, svo að hreppapólitík sveitafélaganna stöðvi ekki þá framþróun. Til að svo geti orðið verða skýrar verklagsreglur um gerð hjólreiðabrauta að komast í vegalög og samgönguáætlun til jafns við akbrautir.
 

Vefsíður, fylgiskjöl og upplýsingar í tölum

Bréf þetta með virkum tenglum má nálgast á vefslóðini: http://islandia.is/lhm/BrefLHM/2006/241106.htm


Idékatalog for cykeltrafik. (Sjálf handbólkin pdf. 15.3Mb)
http://www.vejdirektoratet.dk/dokument.asp?page=document&objno=9178

Collection of Cycle Concepts:
http://www.vejdirektoratet.dk/dokument.asp?page=document&objno=17291 

http://www.vejdirektoratet.dk/dokument.asp?page=document&objno=11566 

Nasjonal sykkelstrategi:
http://www.vegvesen.no/servlet/Satellite?cid=1069341245354&pagename=vegvesen/Page/SVVsubSideInnholdMal&f=true&c=Page 

CBA of Cycling
http://www.norden.org/pub/sk/showpub.asp?pubnr=2005:556 

Gang- og sykkelvegnett i norske byer 
http://www.shdir.no/aktiveskolebarn/fakta/gang__og_sykkelvegnett_i_norske_byer_46141 
http://www.toi.no/article5085-8.html 
http://www.toi.no/article17775-29.html 

Cycling: the way ahead for town and cities (European Commission)
http://ec.europa.eu/environment/cycling/cycling_en.htm 

UK National Cycling Strategy. (Department for Transport)
http://www.dft.gov.uk/stellent/groups/dft_susttravel/documents/page/dft_susttravel_503877.hcsp 

Trafikdage på AAU, 2002 (Civilingeniør Troels Andersen, Odense Kommune)
http://www.cykelby.dk/pdf/cykelvenliginfrastruktur.pdf  (pdf 1.0 Mb)

http://www.sykkelby.no

http://cykelby.dk 

Odense – Danmarks Nationale Cykelby
http://www.cykelby.dk/pdf/cykel_inet.pdf (pdf 2.5Mb)

http://www.nationaler-radverkehrsplan.de/

Odense Magasinet 2002 (pdf 7,6 MB) 

Odense Magasinet 2001 (pdf 1,3 MB)

http://www.completestreets.org/ 

http://www.share-the-road.org/

Þingsályktunartillgaga sem lýtur að því að koma hjólreiðabrautum í vegalög.
http://www.althingi.is/altext/133/s/0082.html 

Umsagnir Landssamtaka hjólreiðamanna við tillögu að breytingu á vegalögum má finna á vef samtakana http://hjol.org

http://islandia.is/lhm/BrefLHM/2006/071106.htm

http://islandia.is/lhm/BrefLHM/2006/081106.htm

Skýrsla Vegagerðarinnar frá 2001 um losun gróðurhúsalofttegunda og samgöngur
http://www.samgonguraduneyti.is/media/Skyrsla/grodurhusaloft.pdf (pdf 3.0Mb)




Fyrir hönd Landssamtaka hjólreiðamanna



______________________________________
Magnús Bergsson