Fostudagur, 18 Mars 2012

>> Fréttir af netinu Íslenskt Eftirlit lögreglu á reiðhjólum

Eftirlit lögreglu á reiðhjólum

Prentvæn útgáfa
Logreglukonur
Lögreglan nýtir reiðhjól við eftirlitsstörf í sumar og ræddu þær Hulda Guðmundsdóttir og Svava Snæberg Hrafnkelsdóttir, hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, við krakka í sumarskóla Hjallstefnunnar á Austurvelli í dag.

Markmiðið með reiðhjólaeftirlitinu er að auka sýnilega löggæslu í miðborginni þar sem fjölga á götum sem lokaðar verða fyrir bílaumferð. Reiðhjólin eru þægileg til eftirlits komast auðveldlega um í miðborginni.

Umferð um hjólastíga á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist mikið og hefur lögreglan aukið eftirlit á þeim. Til að mynda eru margir sem hjóla meðfram ströndinni í Nauthólsvík á góðviðrisdögum.

 


Frétt af vef Mbl.is 27. júní 2011
Deildu fréttinni með vinum