Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaárósa

gongubryrNý göngu- og hjólaleið yfir Elliðaárósa verður lögð næsta sumar og mun hún stytta leiðina milli Grafarvogs og miðborgar umtalsvert eða um  0,7 km.  Gert er ráð fyrir aðskilnaði gangandi og hjólandi umferðar með það í huga að stuðla að bættu umferðaröryggi og gera leiðina greiðari. Umferð hjólandi og gangandi yfir Elliðaár er mikil og má gera ráð fyrir að hún aukist með tilkomu nýju leiðarinnar.

Hugmyndasamkeppni í gangi

Til að fá fram frjóar og áhugaverðar hugmyndir um hina nýju göngu- og hjólaleið yfir Elliðaárósa hafa Reykjavíkurborg og Vegagerðin efnt til opinnar hugmyndasamkeppni. Gert er ráð fyrir að samið verði við höfunda fyrstu verðlaunatillögu um áframhaldandi hönnun á verkefninu til útboðs og er stefnt að hefja framkvæmdir við brýrnar og stígana hefjist næsta sumar og að verkinu verði lokið um haustið.

Hjóla- og göngubrýrnar verða áberandi í borgarlandinu og því mikilvægt að prýði verði að brúnum og þær falli vel inn í umhverfið. Auk fagurfræðilegra þátta munu tæknileg hönnun og kostnaðarmat vega þungt í mati dómnefndar, eins og fram kemur í  keppnislýsingu sem unnin er í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands.

Skilafrestur hugmynda rennur út 13. febrúar
Samkeppnin er tveggja þrepa keppni. Réttur til þátttöku takmarkast við þá sem hafa leyfi til að leggja aðaluppdrætti fyrir bygginganefnd eða eru í samstarfi við aðila með slíka löggildingu.  Úr fyrstu tillögum sem skulu berast í síðasta lagi 13. febrúar verða valdar þrjár hugmyndir til nánari útfærslu.  Keppendur sem komast áfram hafa frest til 9. apríl til að skila tillögum og velur dómnefnd á milli þeirra. Verðlaunafé er 3 milljónir fyrir utan virðisaukaskatt og eins og áður segir er gert ráð fyrir að samið verði við höfunda verðlaunatillögu um hönnun á verkinu til útboðs.

Sjá einnig upplýsingar á þátttökuvefnum http://gongu-og-hjolabryr.reykjavik.is - þar má skoða keppnislýsingu.


Uppruni: http://www.reykjavik.is/desktopdefault.aspx/tabid-3545/436_read-29896/