Hjólað í skólann, lokaverkefni af Menntasviði HÍ

MHHjólað í skólann : rannsókn á reiðhjólanotkun framhaldsskólanema og viðhorfi þeirra til hjólreiða, heitir lokaverkefni frá Menntasviði Háskóla Íslands frá árinu 2009. Höfundurinn er Bjarney Gunnarsdóttir.

Í útdrætti ritgerðarinnar segir hún m.a.:

Kyrrseta er einkennandi fyrir lífsstíl ungs fólks á Íslandi. Rannsóknir sýna að það notar einkabílinn mikið og ferðast að mestu leyti um án líkamlegrar hreyfingar (20). Í danskri rannsókn kom fram að þeir sem hjóla reglulega eru heilsuhraustari en þeir sem hjóla ekki (1). Með það að leiðarljósi var ákveðið að rannsaka reiðhjólanotkun framhaldsskólanema og viðhorf þeirra til hjólreiða. Þrír framhaldsskólar á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í rannsókninni, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og Menntaskólinn í Reykjavík. Send var út spurningakönnun á alla nemendur á bóknámsbrautum ofangreindra skóla. Heppnir nemendur sem svöruðu könnuninni fengu verðlaun frá Markinu og Erninum.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að mjög fáir framhaldsskólanemendur hjóla í skólann. Af þeim nemendum sem hjóla í skólann eru flestir í MR. Lítið af bílastæðum er til staðar fyrir nemendur skólans og þar af leiðandi fáir sem mæta á einkabíl. Fram kom að slæmt veður og fjarlægð frá skóla eru helstu ástæður þess að nemendur hjóla ekki til skóla. Bætt aðstaða fyrir geymslu reiðhjóla og áfangar þar sem boðið er upp á einingar fyrir að hjóla í skólann gætu stuðlað að meiri notkun hjólsins sem farartæki, að mati þeirra sem tóku þátt í könnuninni. Algengara er að nemendur hjóli í frístundum heldur en að þeir hjóli í skólann. Yngri nemendur skólanna, þeir sem eru 18 ára og yngri hafa frekar aðgang að reiðhjóli og hjóla meira í frístundum heldur en eldri nemendur.

Ritgerðina má finna á Skemmunni. Skemman er rafrænt gagnasafn Háskóla Íslands, Háskólans á Akureyri, Háskólans á Bifröst, Háskólans í Reykjavík, Landbúnaðarháskóla Íslands, Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og Listaháskóla Íslands. Í safninu eru einkum geymd lokaverkefni nemenda en einnig rannsóknarrit kennara og fræðimanna.