Rannsókn um upplifun og aðgengi að samgöngum

Reykjavíkurborg leitar að þátttakendum í rannsókn sem greina mun umferðaröryggi- og upplifun. Þátttakendur eiga færi á að vinna gjafabréf að verðmæti 75.000 kr.

Taka þátt í könnun: https://technioniit.eu.qualtrics.com/jfe/form/SV_eLNCWLqawtyAC5U

Rannsóknin er hluti af samstarfsverkefni 28 aðila víðs vegar um Evrópu. Markið verkefnisins er að finna öruggar og sjálfbærar lausnir í samgöngumálum sem skilja engin útundan (t.d. aldrað fólk, fatlað fólk og ungmenni). Í þessum hluta rannsóknarinnar er fólki boðin þátttaka í könnun sem rýnir í ferðahegðun á höfuðborgarsvæðinu og vali á fararmáta. Í kjölfar þess er þátttakendum boðið að hlaða niður appi í símann sinn til að skrásetja hreyfingu um höfuðborgarsvæðið. Könnunin er aðeins einn hluti af viðamiklu verkefni, en nánari upplýsingar um rannsóknina má finna hér.

Kærar þakkir fyrir hjálpina!

Fyrir hönd rannsóknarhópsins,

Hannah Rós Sigurðardóttir Tobin
Verkefnastjóri AMIGOS 
Atvinnu- og borgarþróunarteymi
Urban and economic development
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Nýtt frá LHM

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.