Langahlíð, endurgerð götu

Umsögn um: Langahlíð, endurgerð götu (PDF)

Kópavogi, 10. febrúar 2026

Umsögn um: Langahlíð, endurgerð götu

Tímalína og lýsing verkefnis:

Hinn 23. janúar sl. birtist frétt á vef Reykjavíkurborgar um fyrirhugaðar breytingar á Lönguhlíð:

Langahlíð fær nýtt útlit og verður falleg borgargata með fyrirhuguðum framkvæmdum sem hefjast í vor. Markmið breytinganna er að bæta aðstæður fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur og gera umhverfið öruggara og vistlegra. Framkvæmdirnar verða á svæðinu frá Eskitorgi að Miklubraut. Um er að ræða umfangsmikla veituframkvæmd en í leiðinni fær gatan nýtt útlit en miðeyjan hverfur og sérstakir hjólastígar verða beggja vegna götunnar. Gangstéttir verða næst lóðamörkum en hjólastígarnir verða einstefnustígar upp við gangstéttarnar.


Í kynningu, sem fylgdi fréttinni, fylgdu myndir sem ollu áhyggjum hjólreiðasamfélagsins vegna þess að hjólreiðastígurinn virtist enda rétt áður en komið væri að Eskitorgi við suðurhluta Lönguhlíðar, eins og hjólastígurinn í Borgartúni endar skyndilega við hringtorg við Nóatún.

Með bréfi 29. janúar sl. var Landssamtökum hjólreiðamanna (LHM) boðið að rýna hönnun og koma á framfæri athugasemdum. LHM þakkar tækifærið.

LHM er almennt hlynnt framlagðri fyrirhugaðri hönnun. Með þessum breytingum á Lönguhlíð er öryggi allra vegfarendahópa bætt og umferð bílandi, hjólandi & gangandi samtímis gerð greiðari, skilvirkari, öruggari og vistlegri á þessum mikilvæga norður/suður ási hjólaleiðanets höfuðborgarsvæðisins, sem tengir Borgartún/Laugaveg við hjólastíga í Skógarhlíð og meðfram Bústaðavegi. LHM vill þó gjarnan koma á framfæri nokkrum mikilvægum ábendingum til úrbóta.

Tengsl við hönnunarleiðbeiningar:

LHM gerir að sjálfsögðu ráð fyrir því að leiðbeiningum um hönnun fyrir hjólreiðar [1], sem Reykjavíkurborg er aðili að ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðinni, verði ítarlega fylgt við endanlega hönnun og gerð hjólaleiðarinnar, en vill sérstaklega vekja athygli á nokkrum atriðum, sem öll snúa að því hvernig þessi hjólastígur tengist Eskitorgi, sem og hjólastígnum meðfram Bústaðavegi undir Litluhlíð og hjólastígnum í Skógarhlíð.

Endi hjólastígs er óljós hjólreiðafólki:

Á Facebook síðu sinni sagði borgin m.a.:

Varðandi útfærsluna með að láta hjólastíg enda við gatnamótin þá stafar það af því að veituframkvæmdirnar teygja sig ekki um allt hringtorgið, verkefnið er til komið vegna yfirborðsfrágangs eftir endurnýjun veitulagna í götunni. Til viðbótar má bæta við að útfærslan, þar sem hjólandi taka ráðandi stöðu í hringtorgi, hefur sýnt sig að vera öruggari en að gera hjólareinar eða -stíga við akreinina. Öruggustu innviðir fyrir hjólandi í hringtorgi eru aðgreindir hjólastígar sem eru staðsettir í um 5 m frá akbrautinni, en það er þó rétt aðeins öruggara en hönnun þar sem hjólandi taka ráðandi stöðu, set hlekki á rannsóknir að neðan. Í þessu tilfelli þyrfti að breyta hringtorginu umtalsvert til að koma fyrir öruggum hjólastíg, sem rúmast ekki innan verkefnisins. Það mikilvæga er hins vegar að með breyttri hönnun verður hjólastígurinn betur útfærður í Lönguhlíðinni, öryggi aukið og gatan gerð vistlegri. Samkvæmt umferðarlögum er hjólandi bæði heimilt að vera á götu þar sem hámarkshraði er 30 km/klst, en einnig á gangstéttum. Þau sem, af einhverjum ástæðum, ekki vilja eða kjósa að hjóla á akbraut geta notað gangstéttarnar.


Það er óljóst hvernig hjólreiðafólk á að taka sér ráðandi stöðu nema að fyrst fara inn á götuna, sem yrði þá að gerast ekki seinna en við Blönduhlíð (1) en ekki þar sem hjólastígurinn endar í námunda við Eskitorg; því við Eskitorg er hjólreiðafólk með bílstjóra að baki sér og geta ekki séð hvort að hætta sé á ferðum. En til þess yrði hjólreiðafólki að vera ljóst í fjarlægð að stígurinn sé að enda til að finna hentugt tækifæri til að fara yfir á götuna (aftur, ekki seinna en við Blönduhlíð) til að geta tekið sér ráðandi stöðu áður en komið er að Eskitorgi en ekki láta skipta sköpum hvað gerist þegar stígurinn óvænt endar.

Að sama skapi yrðu þau sem ekki treysta sér að fara á götunni í gegnum hringtorgið að færa sig yfir á göngustíginn ekki seinna en við Blönduhlíð (2) því stígarnir aðgreinast og það er gróður á milli:


 


Blönduhlíð er því seinasti ákvörðunarpunktur og hjólreiðafólk þarf að hafa allar upplýsingar áður en þangað er komið. Óljóst er hvernig því á að vera háttað að koma á framfæri upplýsingum um hvað sé framundan í tæka tíð.

Athuga verður að formlega yrði hjólreiðafólk þó að lækka hraða sinn niður á gönguhraða á kafla á göngustígnum milli Blönduhlíðar og Eskitorgs, sbr. 1. mgr. 43. gr. umferðarlaga, því hjólastígurinn er samhliða göngustígnum.

LHM skilur ekki

Samkvæmt umferðarlögum er hjólandi bæði heimilt að vera á götu þar sem hámarkshraði er 30 km/klst


í svari borgarinnar því hjólreiðafólki er heimilt að vera á öllum akbrautum óháð hámarkshraða sbr. 1. mgr. 42. gr. umferðarlaga, nema þar sem hámarkshraði er 100 eða 110 km/klst. sbr. 37. gr. umferðarlaga.


Endi hjólastígs er óljós bílstjórum:

Það er umdeild og óvinsæl skýring á umferðarlögum að hérna (3) eigi hjólreiðafólk á hjólastígnum réttinn á bílstjóra á götunni 


 


en í umferðarlögum er vegur skilgreindur sem m.a. gata eða stígur, ökutæki eru skilgreind sem öll farartæki nema lestir, ökumaður sem stjórnandi hvers slíks ökutækis og því leiði af 4. mgr. 26. gr. umferðarlaga að ökumaður á götunni (bílstjóri), sem hefur ökumanninn á stígnum (hjólreiðamann) sér á hægri hönd, eigi því að víkja. Enda myndi enginn heilvita hjólreiðamaður reyna að krefjast þess réttar og myndi alltaf stoppa fyrir bílstjóra óháð rétti.

Ekki er samt ljóst hvernig bílstjórar eigi að átta sig á því að hjólastígurinn sé að renna saman við götuna við Eskitorg. Færa má sterk rök fyrir því að öll athygli bílstjóra muni beinast að punkti (4) því þar er þyrping af miðeyju, skilti með ör, hringtorgsskilti, biðskylduskilti, gangbrautarskilti og gangbraut með sérstakri lýsingu, sem dregur að sér alla athygli. Hjólreiðamaður gæti meira að segja verið skyggður að hluta af ljósastaur (5) á krítísku augnabliki en allavega aldrei í fókus þarna til hliðar. Rörsýn bílstjóra yrði á (4).


 


LHM vill leggja til að sett verði hraðahindrun (6) eða breytt yfirborð til að grípa athygli bílstjóra áður en gatan og stígurinn renna saman sbr. rauðan fláka (sem er þó líka norðar en útgangur austan megin) og að sett verði upp skilti 109 Hraðahindrun (7) og 144 Hjólandi vegfarendur (8):


 

Með þeim hætti er athygli bílstjóra fyrst á samrunanum (3) og svo á gangbrautinni (4) og ljóst að gæta þurfi sín á báðum stöðunum. Skoða mætti hvort að allt svæðið frá (6) að hringtorginu sé upphækkað og að hluta með breyttu yfirborði, en gæta þess samt mjög vel að leið hjólreiðafólks sé slétt malbik sbr. hönnunarleiðbeiningar.

Telji borgin það ómögulegt að setja hraðahindrun eða breytt yfirborð verður samt að áliti LHM að grípa til skýrra ráðstafana til að þrepaskipta athygli bílstjóra þannig að athygli þeirra sé fyrst örugglega á samrunapunktinum (3) og hjólareiðafólki á stígnum og svo seinna á þyrpingunni (4).


Lýsing:

LHM vill benda á þörfina á sérstakri lýsingu þar sem stígurinn og gatan rennur saman. Sérstök lýsing er við gangbrautina og samskonar slíka sérstaka lýsingu þyrfti líka við samrunann (3).

Ljósastaur (9 - sami og 5) þyrfti að færa til að hann geti ekki skyggt á hjólreiðamann á krítísku augnabliki og vera í staðinn hinu megin götunnar (10). Það gæti þýtt að endurraða yrði öllum meginljósastaurum götunnar vegna þessa.

Viðbótarlýsingu þyrfti að bæta við samrunann, sérstaklega (11) en einnig líka (12).


 


Tengsl við önnur nærliggjandi svæði:

Í umsögn sinni um Skógarhlíð [2] 14. nóvember 2024 sagði LHM m.a.:

Að skoðað verði hvernig best er að tengja nýja stíginn meðfram Skógarhlíð við núverandi hjólastíg í Lönguhlíð. Hjólastígakerfið á að mynda net og er sjálfsagt að skoða þessa tengingu þegar svona stutt er á milli stíga og breytingar eru fyrirhugaðar á deiliskipulagi.

LHM fékk aldrei viðbrögð við umögn sinni og svo virtist sem verkið í Skógarhlíð hafi verið boðið út vorið 2024, löngu áður en deiliskipulagið var auglýst.

LHM vill ítreka þetta atriði nú þegar verið er að breyta Lönguhlíð, að það verði að vera ljóst hvernig Skógarhlíð og hjólastígur meðfram Bústaðavegi undir Litluhlíð verði tengdir við Lönguhlíð um Eskitorg, sem er bláa svæðið hér en með rauðu eru núverandi hjólastígar:


 


Einkum þarf að skoða strax með þessari framkvæmd í Lönguhlíð gangbrautina á Esikitorgi við Litluhíð og hvernig hjólreiðafólk kemst af götunni yfir á stíg (og svo áfram eftir Skógarhlíð til vestur eða meðfram Bústaðavegi til austurs).

Alls ekki er boðlegt að hjólreiðamaður renni af stíg við Blönduhlíð (1) eða við Eskitorg (3), fari í ráðandi stöðu í gegnum hringtorgið sbr. svar borgarinnar á Facebook en þurfi svo að taka nánast 180° beygju við (13) til að komast af götunni inn á stíginn (hugsanlega með bílstjóra fyrir aftan sig sem skilja ekki hvað er að gerast). Beygjan af götunni við (13) þarf að vera mjúk og kanta þarf að fjarlægja, nánar tiltekið hér, jafnvel þannig að hjólandi fari beint út úr hringtorginu frá hjólavísinum að rafskútunni sem er þarna á miðjum stígnum:


 


LHM vill í þessu samhengi ítreka eitt af þremur áhersluatriðum sínum á fundi með stýrihópi hjólreiðaáætlunar 2026-2030 hinn 23. september sl. um að „stoppa í götin á bútasaumnum“. Eskitorg þarfnast heildarhönnunar til lengri tíma, en að lágmarki þarf að lagfæra þessa tengingu við Litluhlíð sem hluta af þessu verkefni núna í Lönguhlíð svo að hjólreiðamaður komist með öruggum hætti út úr hringtorginu þarna en nærri 180° beygja er ekki örugg.


Virðingarfyllst
f.h. stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna

Erlendur S. Þorsteinsson
formaður


[1] https://www.ssh.is/static/files/svaedisskipulag/hjolaleidir/honnunarleidbeiningar_f_hjolreidar_2019-12-19-m.pdf

[2] https://lhm.is/lhm/skjol/1407-skogarhlid

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.