Teigahverfi - Reykjavegur, Hofteigur, Kirkjuteigur

Reykjavíkurborg

Umsögn um: Teigahverfi - Reykjavegur, Hofteigur, Kirkjuteigur (PDF)

Skipulagsgátt: Teigahverfi - Reykjavegur, Hofteigur, Kirkjuteigur - USK26040131 Mál nr. 599/2026

Kópavogi, 20. maí 2026

Landssamtök hjólreiðamanna (LHM) hafa skoðað tillögu að breytingu á deiliskipulagi Teigahverfis vegna Reykjavegar, Hofteigs og Kirkjuteigs:

Í breytingunni sem lögð er til felst að loka fyrir umferð Kirkjuteigs annars vegar og hins vegar Hofteigs inn á Reykjaveg og að minnka óverulega lóð Laugarnesskóla til að koma fyrir snúningssvæði við enda Hofteigs. 


LHM vill koma á framfæri athugasemdum við þessa tillögu enda virðist sem lokað verði á umferð hjólandi á milli Kringlumýrarbrautar og Laugardals. LHM leggur til að úr þessu verði bætt.

Hofteigur

§ Tengsl við aðliggjandi svæði:

Sbr. meðfylgjandi hluta af teikningu úr tillögunni að þá liggur Reykjavegur almennt norður/suður en það er angi af honum sem liggur austur/vestur (1) á milli meginhlutans annars vegar og Laugardals hins vegar. Samhliða þeim bút er stígur (2) sunnan megin sem liggur austur/vestur og kemur í dag upp að þverun á Reykjavegi. Sú þverun hefur í þessari tillögu verið færð til norðurs (3) þannig að stígurinn og þverunin stemma ekki saman; þverunin (3) myndi nú stemma við (1) en þyrfti að stemma áfram við (2):


 

Engar upplýsingar er að finna á https://skipulagsgatt.is/issues/2026/599 um aðliggjandi skipulag. LHM sendu fyrirspurn (RVK-42587) um hvernig skipulagið væri hinu megin og var vísað á https://skipulagsgatt.is/issues/2025/1283 en þar er engin gögn að finna; þessi takki þar er ekki virkur:


 

LHM gerir ráð fyrir því að ætlunin sé að að þetta eigi að stemma saman en þar sem ekki var hægt að fá nein gögn um aðlægt skipulag verður LHM að leggjast gegn þessari breytingu að svo komnu máli.

LHM vill benda á að í skipulagsgerð er nauðsynlegt að horft sé til aðliggjandi svæða og unnið í samræmdri heild. LHM hefur oft áður gert athugasemdir við bútasaum í skipulag og framkvæmdum, t.d. í Suður-Mjódd (Álfabakka, Árskóga, Skógarsel) en seinustu almennu athugasemdir þar voru

Það er allavega engan veginn hægt að sjá að þarna sé einhver hluti af heildstæðri mynd skipulags og áætlana til næstu áratuga um hvað eigi að gera í Skógarseli, heldur öllu fremur einangraður bútasaumur enn einu sinni án nokkurs samhengis við umhverfið.

 og Hlíðunum (Lönguhlíð, Litluhlíð, Skógarhlíð) en seinustu almennu athugasemdir þar voru


LHM vill í þessu samhengi ítreka eitt af þremur áhersluatriðum sínum á fundi með stýrihópi hjólreiðaáætlunar 2026-2030 hinn 23. september sl. um að „stoppa í götin á bútasaumnum“. Eskitorg þarfnast heildarhönnunar til lengri tíma, en að lágmarki þarf að lagfæra þessa tengingu við Litluhlíð sem hluta af þessu verkefni núna í Lönguhlíð svo að hjólreiðamaður komist með öruggum hætti út úr hringtorginu [...]


LHM vill ítreka þessar almennu athugasemdir um heildræna sýn enn og aftur hér í því samhengi að horfa verður til umferðar hjólandi á milli Kringlumýrarbrautar (4) og Laugardals (5) í þeim breytingum sem hér eru áformaðar á Reykjavegi:

LHM vill sérstaklega vekja athygli á því að þessi leið er töluvert notuð af fólki sem fer hjólandi niður í Borgartún þar sem þetta er eindregnasta leiðin úr Laugardal yfir á göngubrúna við enda Hofteigs (4).

Íbúar við Hofteig tjá LHM að það sé áberandi hvað það er mikil umferð hjólandi og rafskútandi um götuna, sem má skýrt sjá á hitakorti Strava, og að sú umferð hjólandi sé mest á götunni en ekki á gangstéttinni.

Með framangreint í huga verður að mati LHM að gera grein fyrir því hvað gerist austan Reykjavegar / Laugardalsmegin í þessari tillögu hér, og hvernig bæði ný þverun og ný tenging inn á bæði götuna og gangstéttirnar á Hofteigi muni þjóna bæði gangandi og hjólandi.


§ Lokað á umferð hjólandi?

Í tillögunni stendur

Breyting á deiliskipulagi - Hofteigur og Kirkjuteigur

Breyting á deiliskipulagi felst í eftirfarandi:

Breytingin felst í því að gegnumakstursgöturnar Hofteigur og Kirkjuteigur verða botngötur og verður lokað á umferð um þær inn á Reykjaveg með áherslu á gangandi vegfarendur.

Breytingin felst í því að gegnumakstursgöturnar Hofteigur og Kirkjuteigur verða botngötur og verður lokað á umferð um þær inn á Reykjaveg.

LHM hefur af því mjög miklar áhyggjur að þarna stendur „lokað á umferð“ í stað þess að þarna standi „lokað á umferð bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja.“ Þessi texti og meðfylgjandi teikning 

af Hofteigi ásamt „Gert er ráð fyrir kantsteini, götugögnum og gróðri við enda Hofteigs [...]“ verður einungis skilin sem svo að hjólandi megi ekki hjóla Hofteig á götunni til austurs inn í Laugardal. Heldur verði hjólandi vegfarendur að vera á gangstéttinni, gangandi til ama, sem aftur býr til fullkomlega óþarfa núning á milli vegfarendahópa á þessari mikið notuðu hjólaleið.

LHM vill benda á það að „umferð“ er allskonar, t.d. bílaumferð eða reiðhjólaumferð o.sv.frv.

LHM vill vekja athygli á því að skv. 42. gr. umferðarlaga skal hjólreiðamaður að jafnaði hjóla á hjólastíg eða hægra megin á akrein. Veitt er undanþágu frá þessu í 43. gr. og hemilað er að hjóla á gangstétt eða göngustíg en innviðir eiga alls ekki að ýta undir það ef engin þörf er á því. Hofteigur er róleg húsagata og alls engin þörf er á því að hjólreiðafólk sé hjólandi á gangstéttum þar.

LHM leggur því mjög eindregið til að tillögunni verði breytt þannig að 

Breytingin felst í því að gegnumakstursgöturnar Hofteigur og Kirkjuteigur verða botngötur og verður lokað á lokað á umferð bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja um þær inn á Reykjaveg með áherslu á gangandi og hjólandi vegfarendur.

og 

Gert er ráð fyrir kantsteini með góðum römpum fyrir hjólandi vegfarendur, götugögnum og gróðri við enda Hofteigs [...]

eða að ekki verði kantsteinn heldur pollar notaðir til að loka á bílaumferð.

Einnig að hér þar sem er merkt „Lokun götu“


verði sérstaklega gert ráð fyrir hjólandi umferð á götunni (ekki gangstéttinni) sem þurfi að komast yfir þverunina til austurs og inn í Laugardal (og einnig í hina áttina frá Laugardal og inn á götuna (ekki gangstéttina) á Hofteigi). LHM vill vísa til þess hvernig göngu- og hjólastígar byrja við botn Traðarlands sem dæmi um hvernig þetta gæti verið.

Sérstaklega verði hugað að því að alls ekki verði kantar þvert á leið sem hindri för hjólandi vegfarenda. Öllu fremur verði mjúkir, aflíðandi og breiðir rampar þar sem verða hæðarbreytingar.

Einnig að pollar verði notaðir strategískt ef þörf er á til að hindra för bílstjóra, en samt þannig að a.m.k. 1,5 metrar séu á milli polla og að pollar séu ekki í miðri leið/rein hjólreiðafólks.


§ Merkingar:

LHM gerir ráð fyrir því að Hofteigur verði merktur með skilti 652.74


 

við gatnamót Gullteigs sem gefur til kynna að „sameiginlegur stígur sé í framhaldi af“ götunni en að hún sé botngata öðrum, sbr. 21. gr. í reglugerð 250/2024 um umferðarmerki og notkun þeirra. Hugsanlega að þessi merking verði svo ítrekuð við snúningshausinn.

LHM gerir einnig ráð fyrir því að þverunin yfir Reykjaveg til móts við Hofteig verði formlega merkt sem gangbraut, en verði ekki óformleg þverun.


§ Tengsl tillögu við hönnunarleiðbeiningar:

LHM gerir ráð fyrir því að leiðbeiningum um hönnun fyrir hjólreiðar, sem Reykjavík er aðili að ásamt öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðinni, verði ítarlega fylgt, eftir því sem við á, við hönnun og framkvæmdir.

Þó svo að þarna sé ekki hjólastígur að þá er eftir Hofteigi, sem götu, mjög mikilvæg hjólaleið á milli (4) og (5) sbr. mynd hér að framan.

Kirkjuteigur

Framangreindar athugasemdir um Hofteig einnig við um lokun Kirkjuteigs, þar sem við á: 

T.d. að þar sem segir „Lokun götu“ sé lokun götu fyrir umferð umferð bifreiða og annarra skráningarskyldra ökutækja en opið gangandi og hjólandi, að alls ekki verði kantar sem hindri för hjólandi vegfarenda úr botni götunnar heldur verði rampar sem auðveldi för þeirra, gert sé ráð fyrir því að hjólandi komi hjólandi eftir götunni en ekki gangstéttum, Kirkjuteigur verði skiltaður með skilti 652.74, notaðir verði pollar (með 1,5 metra bili) til að hindra för bílstjóra ef þörf verður á, þverunin verði formlega merkt sem gangbraut, o.sv.frv.

Almennt

LHM gerir ráð fyrir að þessar tvær þveranir, við Hofteig og Kirkjuteig, verði sérstaklega lýstar og að hugað verði að því að staurar hindri ekki sjónlínur. Sérstaklega verði hugað að aukinni breidd þverunar við Hofteig með það í huga að þar er og verður töluverð umferð hjólandi jafnt sem gangandi.

Virðingarfyllst
f.h. stjórnar Landssamtaka hjólreiðamanna

Erlendur S. Þorsteinsson
formaður stjórnar

Skoðið þetta

Allir hagnast á samgögnusamningum. Bætt heilsa, færri veikindadagar, skattfrjáls peningur og það bara fyrir að hvíla bílinn?
Samantekt Landssamtaka hjólreiðamanna um gerð samgöngusamninga.
LHM hefur útbúið leiðbeiningar fyrir umferð hjólandi á stígum og gangstéttum og götum. Markmiðið með úgáfu leiðbeininganna er að auka öryggi hjólandi í umferðinni og draga úr núningi milli hjólandi og annara vegfaranda hvort heldur er á stígum eða götum.
Leiðbeiningar LHM um umferð hjólandi á stígum og götum
Sáttmálinn innheldur góð ráð bæði til hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra. Hann var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni, Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun (María Ögn), Landsamtaka hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
Nú geta einstaklingar gerst aðilar að LHM með einföldum hætti. Nánar hér.