Það eru ýmsar lausnir sem koma til greina til að auðvelda hjólreiðafólki að komast leiðar sinnar um bílaborgir og hér er búið að safna nokkrum skemmtilegum leiðum. Munich myndin sýnir reyndar lausn með mörgum földum hættum og Manchester myndin er dæmi um hluti sem best er að sleppa. Hinar sýna ýmsar lausnir sem gagnast betur og þannig lausnir virka mjög hvetjandi á fólk til að prófa hjólið sem farartæki.
Jákvæðu atriðin selja hjólreiðar en ekki tal um öryggisbúnað. Þetta vita bílaframleiðendur enda reyna þeir ekki að selja bílahjálma með bílunum þó ökumönnum sé síst minni hætta búin en öðrum í umferðinni. {jathumbnail off}
Átak til að auka hjólreiðar kvenna með hjólalest. Ekki skemmir að farið um um nýjar hindunarlausar leiðir kostaðar bæði af ríki og borg í fylgd lögreglu.
Orka hjólreiðamanna lýsir upp jólatréð á Ráðhústorginu. Nýstárleg leið til að vekja athygli á umhverfismálum.
Í Ballerup í Danmörk er skilningur fyrir því að allir þurfa að vinna saman að því að auka hjólreiðar ef ná á markmiðum í umhverfismálum, bættri heilsu íbúanna og bættu félagslífi. {jathumbnail off}

Athyglisverð grein um hvernig best er að markaðsetja hjólreiðar og hvað ber helst að forðast. Íslendingar gætu lært mikið af þessum manni.
Brad Kilburn fjallar um afstöðu sína gegn hjálmaskyldu (en ekki notkun) og hina gölluð gömlu rannsókn sem styrkt var af hjálmaframleiðanda og kom hjálmaskylduboltanum af stað. Bolta sem nú rúllar inn í íslensk umferðarlagadrög.
Hjólamenning af ymsum toga hefur oft verið frekar karllæg, en í þeim löndum sem mest er hjólað, hjóla konur ekkert síður en karlar. Nýverið hefur maður séð ýmsar Cycle Chic síður dúkka upp, sem sýna konur sem hjóla með stíl. Hér er hinsvegar tengill í eina veglegustu síðuna fyrir konur sem keppa í hjólreiðum
Page 6 of 29