Dagskrá laugardagsferða haustið 2018

Hjólaferðir LHM frá Hlemmi verða farnar á laugardagsmorgnum í vetur nú sem endranær. Að þeim standa Landssamtök hjólreiðamanna og aðildarfélag þess, Hjólafærni. Fyrir-hjólari flesta laugardaga verður Árni Davíðsson hjólafærnikennari og formaður Landssamtaka hjólreiðamanna.Sú breyting verður samt að nú verður farið annan hvern laugardag. 

Fyrsta ferðin verður laugardaginn 6. október. Síðan verður farið annan hvern laugardag fram til 1. desember. Engar ferðir verða í desember en fyrsta ferð eftir áramót verður 12. janúar 2019 og síðan annan hvern laugardag til 20. apríl. Mæting er milli 10:00 og 10:15 og er hjólað af stað kl. 10:15. Sem fyrr segir verður lagt af stað frá Hlemmi en vikulegar upplýsingar birtast á Facebook síðu LHM: Landssamtök hjólreiðamanna (https://www.facebook.com/LandssamtokHjolreidamanna/).
Plakat til að hengja upp og auglýsa ferðirnar er hér: 
 
Dagskrá ferðanna:
  • 6. október - Reykjavík á röngunni
     Í „Reykjavík á röngunni“ kynnumst vð hinni hliðinni á borginni. Við hjólum um falda göngustíga, þröngar götur, undirgöng og bakgarða. Þetta er auðveld ferð og tilvalin til að sjá borgina á annan hátt og kynnast því að hjóla í góðum hóp.
  • 20. október - Þrengdar norður suður götur
    Mikið hefur verið rætt og ritað um þrengingu Grensásvegar. Grensásvegur er ein af þeim götum i norður-suður stefnu í Reykjavík sem hefur verið þrengd undanfarna 2 áratugi, í því skyni að auka umferðaröryggi fyrir börn og aðra sem ganga og hjóla í hverfunum. Þennan laugardag ætlum við að skoða þessar götur sem hafa verið þrengdar og pæla í þeim lausnum sem hafa verið hannaðar til að draga úr umferðarhraða og auka umferðaröryggi.
  • 3. nóvember - Öryggisúttekt hjólastíga
    Árið 2014 vann LHM verkefni í samvinnu við Mannvit með styrk frá Rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar þar sem gerð var skýrsla um hvernig ætti að standa aö öryggisskoðun hjólastíga. Í ferðinni ætlum við að skoða nokkra staði sem voru athugaðir í þessu verkefni. Sumir hafa breyst en aðrir ekki.
    Hér er upptaka af kynningu á verkefninu á Hjólum til framtíðar 2015.
  • 1. desember - Á hjóli um sögu fullveldisins - fögnum 100 ára afmælinu á 1. des
     Hjólafærni, LHM og Listasafn Reykjavíkur taka höndum saman og bjóða upp á hjólatúr með leiðsögn. Hjólað verður á milli listaverka og minnisvarða sem tengjast sögu fullveldisins með ýmsum hætti. Staldrað verður við og sagt frá því sem fyrir augu ber.
Hjólaðar eru mismunandi leiðir um borg og bý eftir rólegum götum og stígum í 1-2 tíma. Markmiðið er að hittast og sjá og læra af öðrum hjólreiðamönnum hversu auðvelt er að hjóla í bænum. Mikið lagt upp úr spjalli og rólegri ferð.
 
Ferðirnar eru ókeypis og allir velkomnir. Allir sem kunna að hjóla eiga að geta tekið þátt. Meðalhraði fer eftir hægasta manni en ætti oftast að vera á bilinu 10-20 km/klst. Þegar vetrar og dimmir þarf að gera ráð fyrir hlýjum og skjólgóðum fatnaði og að hafa ljós að framan og aftan. Í hálku er öryggi í nagladekkjum á hjólinu. Auðvelt er að taka strætó á Hlemm og aðra upphafsstaði með hjólið á laugardögum, áætlun strætó er á www.straeto.is.
 
Fyrirvari er um að menn hjóla á eigin ábyrgð að öllu leyti.
 
Ef menn vilja bæta öryggi sitt á hjólinu og fá kennslu í samgönguhjólreiðum er hægt að óska eftir kennslu á öðrum tímum. Hjólaafærni veitir margháttaða þjónustu sem hægt er að kynna sér á vefnum www.hjolafaerni.is eða með því að hringja.
 
Frekari upplýsingar má fá í síma eða í tölvupósti og sömuleiðis má láta vita af þátttöku í laugardagsferð.
 
Árni Davíðsson
s. 862 9247
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
 
Sesselja Traustadóttir
s: 864 2776
This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.