Safn frétta og greina úr ýmsum áttum sem tengjast hjólamenningu, hjólafólki og þeim útbúnaði sem það notar.

Flokkur: Fólk

Reiðhjólaverzlunin Berlin selur lífsstíl

Reidhjolaverzlunin_Berlin_Snoop-Around_PicNannaDis_020-1-of-1Berlín er meira en bara hjólabúð, hún selur í raun lífsstíl. „Við vildum kynna nýjan lífsmáta fyrir Íslendingum. Megin hugmyndin er að fólk einbeiti sér að áfangastaðnum frekar en hvernig þú komist þangað. Val þitt á fararmáta á ekki að hafa áhrif á klæðaval.“
„Við vildum sýna fólki að það má hjóla um borgina í tískuklæðnaði og eða hversdagsfatnaði. Spandex er óþarft.“

Flokkur: Fólk

Tweed Run Reykjavik 2012

Þann 16. júni næstkomandi er fyrirhufb-tweedrunreykjavikguð hópreið fólks um Reykjavík þar sem allir hjóla um í sínu fínasta pússi og helst úr tweed efnum að erlendum sið. Fyrirhugað er að hjóla um miðbæ Reykjavíkur og enda í síðdegishressingu í breskum anda. Verðlaun verða veitt fyrir best klædda herran og dömuna sem og fyrir glæsilegasta fararskjótan. Herrar og dömur Reykjavíkur eru hvött til að fara í tweed jakkana og draktirnar eða annan álíka klassískan fatnað, mæta í hjólreiðaförina í sumar og ljá borginni fagurt og glæsilegt yfirbragð. Skráning og nánari upplýsingar eru á heimasíðunni og á Facebook

Flokkur: Fólk

Borgarstjóri á hjóli

Borgarstjóri á hjóliBorgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr elskar hjólið sitt og nýtir það eins oft og hann getur. Reykjavíkurborg hefur á umliðnum árum unnið stórt verk í fjölgun hjólastíga og auknu öryggi hjólreiðafólks til að auðvelda notkun hjólhestsins.
Flokkur: Fólk

Betra að hjóla á háum hælum

  • dv-2012_3_12Oddný Sturludóttir hefur aldrei átt bíl
  • Konur hjóla minna en karlar í Reykjavík

Ég hef aldrei átt bíl og reyni að ferðast alltaf um á hjóli, það getur verið snúið en ég reyni að skipuleggja mig til hins ýtrasta,“ segir Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sem stendur að því verkefni borgarinnar að grípa til aðgerða til að fá fleiri konur til að hjóla í Reykjavík. Verkefnið ber yfirskriftina; Fröken Reykjavík á hjóli.

Flokkur: Fólk

Einfaldara líf með því að hjóla

frettabladid-120218-LUmhverfisverkfræðingurinn Ólafur Árnason hjólar til og frá vinnu, sama hvernig viðrar. Hann sagði Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur frá því hvað rekur hann áfram í því líferni: Að vera umhverfisvænn, stunda holla hreyfingu og spara. Hann notar bílinn bara þegar nauðsyn krefur og segir fyrirkomulagið hafa einfaldað líf fjölskyldunnar allrar. Hann segir Reykjavíkurborg standa sig vel í að halda stígakerfinu opnu og telur að hjólreiðar geti skipt verulegu máli í að draga úr mengun frá umferð í Reykjavík.

Flokkur: Fólk

Með hjólið á bakinu í frönsku Ölpunum

mbl-120214Ærið verkefni er framundan hjá hjólreiðamanninum Rúnari Theódórssyni sem keppir í Trans-Provence-fjallahjólakeppninni  í frönsku Ölpunum í haust. Rúnar hefur hjólað víða um Ísland, meðal annars um hálendið og segir Ísland mjög hentugt fyrir fjallahjólreiðar.

Flokkur: Fólk

Hjólað með stæl í snjó

tweedrun_kristakeltanen_36Finnar láta ekki smá snjó trufla sig við hjólreiðar og það þó standi til að hjóla um uppáklæddur í tweed fatnaði.

Víða um heim sameinast fólk í hópreiðar með ýmsum þemum líkt og í þessari tweed hópreið og má þar nefna Hjólað berbakt hópreiðina sem tvisvar hefur verið farin hér á menningarnótt.

 

Flokkur: Fólk

Breytti lífinu með ánægjuna að vopni

mbl-120117Ómar Smári Kristinsson, eða Smári, hreyfði sig ekki að ráði og fékk reglulega slæman höfuðverk. Í dag hefur hann klifið flest fjöll á Vestfjörðum, þar sem hann býr, og tekist á köflum á við hetjulegar torfæruleiðir á hjóli. Í Hjólabókinni, dagleiðum í hring á hjóli, segir Smári frá skemmtilegum hjólaleiðum á Vestfjörðum og segist vonast til að bókin verði fleirum hvatning

Subcategories

Safn skemmtilegra frétta og greina sem tengjast eflingu hjólreiða, hvataverkefnum og fl.

Fréttir og greinar um tæki, tól og annan útbúnað.

Safn skemmtilegra frétta og greina sem tengjast  hjólafólki og þess sem það tekur upp á.

Nokkrar hugmyndir að hjólaferðum

Víða eru skemmtilegar hjólaleiðir um land allt. Tilvalið er að fara inn á heimasíður sveitarfélaga, ferðafélaga eða reiðhjólaklúbba og afla sér upplýsinga en hér eru nokkrar hugmyndir.
Safn af skemmtilegum myndböndum